| 
Innskráning

Plötur

isbjarnarblusUndir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

Lög og textar

bubbi_og_megasÍ gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

Spjalltorg

login-minTaktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

Tímalína og molar

3-heimarUndir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.

Lagaleit

Tímalína

  • Árið 1974 Grunnurinn var lagður að ferlinum með því að spila og syngja hvar sem því var viðkomið. Þetta er árið sem Ísbjarnarblúsinn varð til og síðan hvert lagið og textinn á fætur öðru. Þetta er líka árið sem Bubbi kynntist Megasi. Hér er Bubbi á einhverri verbúðinni (líklega á Hornafirði) á landshornaflakki sínu sem farandverkamaður í maí 1974.
     

  • Janúar 2007 Netlistinn sem byggður er á sóttum og seldum lögum á Tónlist.is birtir lista yfir vinsælustu lögin 2006. Í efsta sæti listans sat lagið Með þér eftir Bubba Morthens í flutningi Ragnheiðar Gröndal. Fram kemur í frétt með listanum að yfir 2000 eintök hafi selst af þessu lagi frá því það kom út sumarið 2006. 
     

  • 2.  janúar 1985 hóf Bubbi upptökur fyrir væntanlega sólóplötu sem síðar fékk heitið Kona. Með honum í hljóðverinu var Tryggvi Herbertsson í hlutverki upptökustjóra og þá var Þorleifur Guðjónsson tíður gestur í hljóðverinu með bassann. 

  • Janúar 2006 fyrsti gestur ársins í húsi Bubba var flensa. Fyrsta uppákoman voru sem sagt veikindi en Bubbi var fljótur að ná sér og mætti kátur á á þá næstu sem var öllu meiri gleði.
     

  • 16. febrúar 2001 Skemmti Bubbi gestum á Pizza 67 í Hafnarfirði.  
     

Plötur

Pottţétt rokk 2
Pottţétt rokk 2

Kćrleikur
Kćrleikur

Í 6 skrefa fjarlćgđ frá Paradís
Í 6 skrefa fjarlćgđ frá Paradís

GCD
GCD

Frá upphafi til enda
Frá upphafi til enda


Forsíđa
Tónleikar og frítt inn PDF Prenta Tölvupóstur
Image30 ÁRA ÚTGÁFUAFMÆLI BUBBA MORTHENS
 
Á þessu ári heldur Bubbi upp á 30 ára útgáfuafmæli sitt. Það var 17. júní árið 1980 að hann gaf út sína fyrstu plötu, Ísbjarnarblús. Þann dag urðu straumhvörf í íslenskri tónlistarsögu því þarna var stiginn fram tónlistarmaður sem hefur án efa markað ein dýpstu og merkilegustu sporin í tónlistarsögu síðustu 30 ára. Enginn hefur verið eins afkastamikill og hann, enginn hefur selt jafn margar plötur og hann og enginn hefur haldið jafn marga tónleika og hann undanfarin 30 ár.
 
TÓNLEIKAR UM LAND ALLT OG FRÍTT INN


 
            Í tilefni þessara merku tímamóta hefur Bubbi ákveðið að fara um landið, líkt og hann hefur gert undanfarin 30 ár.  Bubbi fékk úthlutað listamannalaunum í  fyrsta skipti  og í  tilefni þess mun hann bjóða fólki á tónleika sína sem fyrirhugaðir eru í apríl og mai.  Þykir Bubba við hæfi að fara frekar þessa leið heldur en að setja upp stóra tónleika í Laugardalshöllinni eða Egilshöll.  Þessi ákvörðun er í  rökréttu framhaldi þess að Bubbi er nú  að ljúka hádegistónleikaför sinni sem hann nefndi "Rætur" en þar heimsótti hann nær alla Mennta-og Framhaldsskóla landsins í  hádeginu og spilar fyrir nemendur án þess að þiggja laun fyrir. Bubbi er því  í raun að þakka fyrir sig á þennan máta, annars vegar að bjóða unga fólkinu upp á hádegistónleika og nú, að fara tónleikaferð án þess að selja inn.
 
TÓNLEIKAFERÐIN
 
Tónleikaferðin hefst 15.apríl og lýkur ekki fyrr en 08. mai.  Dagskráin er eftirfarandi :

Apríl    
    
15 Flateyri Kirkjan
16 Ísafjörður Edinborgarhúsið
17 Hólmavík Bragginn
18 Sauðárkrókur Mælifell
20 Dalvík  Menningarhúsið
21 Akureyri Græni Hatturinn
22 Ýdalir  Salurinn
23 Egilsstaðir Valaskjálf
24 Fáskrúðsfjörður Félagsheimilið
25 Hornafjörður Menningarhúsið
28 Kjós  Félagsgarður
29 Akranes  Bíóhöllin
30 Selfoss  Hótel Selfoss
    
Mai    
    
Reykjavík Óákveðið - Frestð
5 Mosfellsbær Hlégarður
6 Hafnarfjörður Bæjarbíó
7 Borgarnes Menningarsetrið
8 Keflavík Hljómahöllin 
??? Reykjavík - óákveðið - Auglýstir síðar

ÞAÐ SEM VERT ER AÐ VITA
 
    -Allir tónleikarnir hefjast kl 20:30
    -Húsin opna kl 20:00
    -Frítt inn á alla tónleikana meðan húsrúm leyfir

 
< Fyrri   Nćsti >

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?