Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.Bubbi á YouTube.com
febrúar 2004 bárust fréttir þess efnis að Egoið kæmi saman á ný, ekki var í upphafi ljóst hvaða liðskipan yrði á sveitinni en líklegast var þar um Magga trommara og síðan var á huldu hver bassaleikarinn yrði. Síðar kom í ljós að um endurreisn sveitarinnar var að ræða ekki endurkomu þeirrar sveitar sem kvatt hafði með sinni þriðju og síðust plötu árið 1984. Menn biðu því spenntir eftir hver liðskipanin yrði og voru uppi ýmsar getgátur í þeim efnum.
Apríl 1992 Bubbi heldur til Kúbu til plötuupptöku. Þetta er ekki aðeins einstakur viðburður hér á íslandi, því Bubbi varð fyrsti vestræni tónlistarmaðurinn til að hljóðrita plötu á Kúbu frá því Bandaríkin settu viðskiptabann á landið 1961. Með Bubba í þessari för voru Gulli Briem trommuleikari og Eyþór Gunnarsson í hlutverki útsetjara. Reyndar á Tómas R. Einarsson heiðurinn að því að Kúba varð fyrir valinu. Bubbi sem hafði lengi haft hug á að taka upp suðurameríska tónlist utan íslands var með Brasilíu í huga er hann viðraði hugmyndir sínar við Tómas sem þá stakk upp á Kúbu sem varð svo fyrir valinu. Á myndinni má sjá Bubba í upptökuhljóðverinu á Kúbu.
Vorið 1979 hóf Bubbi störf í Kassagerð Reykjavíkur og kynntist þeim bræðrum Danny og Mike Pollock, sem síðar stofnuðu með honum hljómsveitina Utangarðsmenn.
7. janúar 1996 var Morgunblaðið með ýtarlegt viðtal við Bubba undir fyrirsögninni: Í draumi sérhvers manns er kona hans falin... Í viðtalinu er farið um víðan völl allt frá áhrifavöldum í tónlistinni, bækur og nýort ljóð Bubba, Bubbi lýsir skoðunn sinni á stöðunnar í íslenskri tónlist almennt og til trúmála.
5. janúar 2009 Óhætt er að segja að ástandið í Íslensku samfélagi hafi ekki verið burðugt í þessum fyrsta mánuði ársins. Bubbi sem í árslok 2008 hafði kvatt þjóðina til að standa saman hafði nú snúið við blaðinu þar sem honum fannst ráðamenn langt frá því standa sig í aðgerðum til bjargar almenningi og mætti á morgni 5. janúar hjá Óla Palla á Rás 2 og stuttu síðar hjá Ívari á Bylgjunni með nýtt lag “Kannski varð bylting vorið 2009”
| Bubbi á ferð um landið |
|
|
|
|
![]() Spilað frítt þessa dagana |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?