| 
Innskráning

Plötur

isbjarnarblusUndir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

Lög og textar

bubbi_og_megasÍ gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

Spjalltorg

login-minTaktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

Tímalína og molar

3-heimarUndir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.

Lagaleit

Tímalína

  • Febrúar 1994 Heyrðu aftur 93 kemur út, Þar á Bubbi lagið Það er gott að elska auk þess sem þar er líka að finna lag G.C.D. - Sumarið er tíminn . Lagið sem kom út á plötunni Svefnvana hafði notið mikilla vinsælda og er enn mikið leikið á útvarpsstöðvum
     

  • 27. febrúar 2003 kom Bubbi fram á bæði Bylgjunni og Rás 2. og kynnti væntanlega tónleikaröð á Hótel Borg. Þar sem ætlunin var að bjóða upp á kvöldverð og tónleika. Bubbi flutti nokkur lög á báðum stöðvunum meðal annar nýtt lag sem bar vinnuheitið Fyrirgefðu og var síðar notað á sólóplötu hans þetta ár.

  • 12. febrúar 1981 var blásið til Stjörnumessu á Hótel Sögu. Utangarðsmenn hlutu verðlaun fyrir vinsælustu plötuna og sem vinsælasta hljómsveitin. Auk þess var Bubbi valinn vinsælasti söngvarinn og vinsælasti textahöfundurinn. Sveitin sjálf tók þó ekki við verðlaununum þar sem hún var með tónleika á Hótel Borg á sama tíma. Utangarðsmenn sögðust reyndar síðar gefa lítið fyrir slíkar uppákomur skallapopparanna og markaðshyggjumanna.
     

  • Árið 1974 Grunnurinn var lagður að ferlinum með því að spila og syngja hvar sem því var viðkomið. Þetta er árið sem Ísbjarnarblúsinn varð til og síðan hvert lagið og textinn á fætur öðru. Þetta er líka árið sem Bubbi kynntist Megasi. Hér er Bubbi á einhverri verbúðinni (líklega á Hornafirði) á landshornaflakki sínu sem farandverkamaður í maí 1974.
     

  • 1. janúar 1997 var Bubbi Morthens meðal þeirra sem komu fram á sérstökum nýársfagnaði '68 kynslóðarinnar í Súlnasal Hótel Sögu. En þetta var fimmta árið sem slýk hátíð fór fram.
     

Plötur

Sögur 1980-1990
Sögur 1980-1990

Svefnvana
Svefnvana

Skapar fegurđin hamingjuna
Skapar fegurđin hamingjuna

Serbian flower
Serbian flower

Gamall draumur - Óskar Guđnason
Gamall draumur - Óskar Guđnason


Forsíđa
Efst á baugi PDF Prenta Tölvupóstur

ImageVið minnum á og mælum með að menn setji sig í rólegu stellingarnar á mánudagskvöldum og hlusti á Færibandið. Þar hefur Bubbi undanfarin mánudagskvöld verið að fara yfir lífshlaup Gunnars Þórarsonar. En eins og allir vita er Gunnar Þóarðarson í hópi okkar flottustu lagasmiða og má segja að ferill hans sé jafngamall íslenskri nútíma-popptónlist. Hann er einn af frummönnum poppsins hér á landi og er enn að skila af sér sterkum melódískum tónlistarsmíðum. Það má segja að þarna hittist andstæðurnar, Bubbi: maðurinn sem farið hefur með látum í gegnum feril sinn sem popp og rokkari og ekki legið á skoðunum á mönnum og málefnum. Og svo Gunnar Þórðarson, hljóður og svo dagfarsprúður að menn taka ekki eftir honum  en allir hlusta þó á hann.

Missið ekki af Færibandinu á Mánudagskvöldum - Saga Íslenskrar tónlistar beint frá mönnunum sem sköpuðu hana og eru enn að.

 
< Fyrri   Nćsti >

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?