Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.Bubbi á YouTube.com
1. janúar 1997 var Bubbi Morthens meðal þeirra sem komu fram á sérstökum nýársfagnaði '68 kynslóðarinnar í Súlnasal Hótel Sögu. En þetta var fimmta árið sem slýk hátíð fór fram.
Febrúar 1989 hélt Bubbi í hljóðver til að vinna næstu plötu sína. Með honum í för var sænski snillingurinn Christian Falk, í hlutverki upptökustjóra, auk þess sem hann greip í nokkur hljóðfæri við upptökurnar. Hópur sem stóð að upptökum plötunnar nefndi sig Lamarnir ógurlegu sem voru: Christian Falk, Johann Söderberg, Hilmar Örn Hilmarsson og Ken Tomas.
4. janúar 1993 tilkynnti Bubbi forráðamönnum útgáfufyrirtækisins Steinari hf að hann vildi slíta samstarfi sínu við útgáfuna. DV birti frétt þess efnis 14. janúar. 15. janúar skýrir DV svo frá því að Bubbi eigi í viðræðum við Skífuna um útgáfusamning. Svo virðist sem sagan endurtaki sig þar sem þetta var í annað sinn sem Bubbi sleit samningi við útgáfuna. Það gerði hann og 1984. Sem og þá spunnust um þetta talsverð blaðaskrif og þá mættu þeir Bubbi og Steinar í útvarpsþætti til að skýra hvor sína hlið málsins. Allt virtist stefna í málaferli vegna þessa þar sem Steinar hf. taldi Bubbi skulda útgáfunni uppfyllingu samningsins til að geta sagt honum upp. Þar á meðal enska útgáfu Kúbuplötunnar Von. Bubbi var þessu ósammála og taldi fyrirtækið skulda sér peninga m.a. í formi stefgjalda.
2. janúar 1985 hóf Bubbi upptökur fyrir væntanlega sólóplötu sem síðar fékk heitið Kona. Með honum í hljóðverinu var Tryggvi Herbertsson í hlutverki upptökustjóra og þá var Þorleifur Guðjónsson tíður gestur í hljóðverinu með bassann.
16. febrúar 2001 Skemmti Bubbi gestum á Pizza 67 í Hafnarfirði.
| Platan Von |
|
|
|
|
![]() Von tekin upp á Kúbu Meðan Bubbi og Svíinn Christian Falk voru að vinna saman plötuna Nóttin langa 1989 fór Bubbi að viðra við hann gamla drauma sína um að gera plötu undir suður-amerískum áhrifum. Christian Falk leist vel á hugmyndina og voru nær lagðar línur í að þeir ynnu saman að því að gera þennan draum Bubba að veruleika. Hugmyndin var að þeir færu jafnvel til Brasilíu og ynnu þar tilraunakenda plötu með að blanda saman evrópskri popptónlist og Suðuramerískri danstónlist. En áður en þessar fyrirætlanir þeirra félaga náðu fram að ganga lést jazzgeggjarinn og píanóleikarinn Guðmundur Ingólfsson. En lát hans átti eftir að hafa mikil áhrif á þessar áætlanir þeirra félaga.
![]() Málin rædd í Egram stúdíóinu Jú, ástæða þess er að á minningartónleikum sem haldnir voru 24 desember 1991 mætti Bubbi með nýsamið lag sitt Þínir löngu grönnu fingur, sem hann hafði samið sérstaklega um vin sinn og samstarfsfélaga Guðmund Ingólfsson, En þessir tónleikar voru einmitt tileinkaðir minningu hans Á þessum tónleikum viðraði Bubbi hugmyndir sínar um að hljóðrita plötu í Brasilíu við djassarann Tómas R. Einarsson, Tómas stakk þá upp á Kúbu. Bubbi greip hugmyndina á lofti og hóf að kanna málið. Stóð þá til að með Bubba færu utan Christian Falk og trommuleikarinn Gulli Briem ásamt Friðriki Þór Friðrikssyni sem ætlaði að festa förina á filmu.
![]() Hluti sveitarinnar við upptökurnar
![]() Hlustað á afrakstur dagsins
Tveim dögum síðar eða þann 12. maí hófust svo upptökur í Egrem stúdíóinu í Havana og gengu upptökur vonum framar. á aðeins fjórum dögum voru grunnar 10 laga teknir upp og lauk upptökum þann 16. maí og hófu þeir þá að ,,döbba" það er að bæta inn aukahljóðfærum.
![]() Bubbi við upptökur á Kúbu
Þó Sierra Master gefi Von þennan seiðandi suðræna blæ eru einkenni Bubba þó hvarvetna alsráðandi. Hann nær með ótrúlegri og lagni að sveiga þessa sterku og taktföstu tónlistina að sínum áhrifum. Þrátt fyrir að tónlistin sé full af sól eru textarnir tregablandnir sé notað eitthvert eitt orð yfir þá. Þetta má vel heyra í minningarljóðunum tveim: Þínir löngu grönnu fingur og Ég minnist þín. Bubbi lokar þessari plötu á lagi sem ekki hafði komist inn á Sögur af landi; Brunnurinn okkar, sem undirstrikar vel að gagnrýnin í textum Bubbi er sterk sem fyrr. Og fleiri lög í þeim anda má finna á plötunni.
|
| < Fyrri | Næsti > |
|---|
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?