| 
Innskráning

Plötur

isbjarnarblusUndir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

Lög og textar

bubbi_og_megasÍ gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

Spjalltorg

login-minTaktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

Tímalína og molar

3-heimarUndir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.

Lagaleit

Tímalína

  • 2.  janúar 1985 hóf Bubbi upptökur fyrir væntanlega sólóplötu sem síðar fékk heitið Kona. Með honum í hljóðverinu var Tryggvi Herbertsson í hlutverki upptökustjóra og þá var Þorleifur Guðjónsson tíður gestur í hljóðverinu með bassann. 

  • Vorið 1971 “Ég strauk að heiman og fór á puttanum upp í Saltvík. Þar spilaði ég í þrjá sólahringa fyrir hvern sem var. Ég fékk að spila eitt lag eftir Donovan með Roof Tops, og síðan tyllti ég mér bara fyrir utan eitthvert tjaldið og spilaði” segir Bubbi í bók Gests Guðmundssonar og Kristínar Ólafsdóttur – 68 hugarflug úr viðjum vanans. Sennilega er þessi uppákoma með Roof Tops fyrsta skiptið sem Bubbi spilar á sviði fyrir almenna áheyrendur. En Saltvíkurhátíðin var haldin um Hvítasunnuhelgina 1971. Þar mættu til leiks allar helstu stórsveitir og popparar landsins.

  • 5. janúar 2009 Óhætt er að segja að ástandið í Íslensku samfélagi hafi ekki verið burðugt í þessum fyrsta mánuði ársins. Bubbi sem í árslok 2008 hafði kvatt þjóðina til að standa saman hafði nú snúið við blaðinu þar sem honum fannst ráðamenn langt frá því standa sig í aðgerðum til bjargar almenningi og mætti á morgni 5. janúar hjá Óla Palla á Rás 2 og stuttu síðar hjá Ívari á Bylgjunni með nýtt lag “Kannski varð bylting vorið 2009”

  • 30. janúar 1982 fékk Bubbi Magnús Stefánsson, fyrrum meðlim Utangarðsmanna og síðar Bodies, til að setjast við trommusett Egosins í stað Jóa ,,Motorhead“. En pressan skrifaði að til hafi staðið að Maggi færi að spila með Brimkló. Maggi hvorki neitaði né staðfesti þær sögusagnir.
     

  • aftir19566. júní 1956 Fæddist í Reykjavík, yngstur fjögurra bræðra, Ásbjörn Kristinsson Morthens, fljótlega festist við hann nafnið Bubbi. Hann ólst upp í Vogahverfinu, móðir hans var dönsk, faðir hans hálf norskur. Í Vogunum kynntist hann strákum eins og Einari Má Guðmundssyni, Friðrik Þór Friðrikssyni og Agli Ólafssyni. Mestan hluta bernsku sinnar átti Bubbi heima hérlendis, en bjó þó um tíma í Danmörku og gekk þar í skóla. Á þeim tíma uppgötvaðist að Bubbi var haldinn skrifblindu, en hún hafði verulega hamlað skólagöngu hans heima á Íslandi. Um 1973 snýr Bubbi til Íslands á ný. Hann leggur þá frekari skólagöngu á hilluna og gerist farandverkamaður og verbúðaþræll. Allt fram til 1980. Fyrsta gítarinn sinn eignaðist Bubbi ungur og fylgdi hann honum hvert sem hann fór.

Plötur

Utangarðsmenn
Utangarðsmenn

Kóróna landsins - DVD
Kóróna landsins - DVD

Í upphafi skyldi endirinn skoða
Í upphafi skyldi endirinn skoða

Geyser
Geyser

Ást í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís - DVD
Ást í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís - DVD


Forsíða
Meira um plötuumslög PDF Prenta Tölvupóstur
ImageÍ þessum mola ætlum við að fjalla um hönnunina á nokkrum platna Bubba. Hönnun sem slík er ekkert aukaverk og oft á tíðum stórlega vanmetið þegar útgáfaur platna eru skoðaðar í heild sinni. Fæstir gagnrýnenduur hérlendis fjalla um þennan þátt útgáfuverksins. En hann getur skipt miklu máli eins og allar rannsóknir í þá veru gefa til kynna, þegar að markaðssetninguog sölu plötunnar kemur.  Til eru plötur í sögunni þar sem albúmið er þekktara en efnið. Menn þekkja plötuna af umslginu, þó þeir geti ekki nefnt eitt einasta lag hennar. Má t.d. nefna bananaplötu Velvet Underground í því sambandi.
Það er að mörgu að hyggja þegar ráðist er í útlitshönnun platna. Það er ekki nóg að finna hentuga mynd, velja þarf letur, staðsetningu þess og hvar hvað skal sett inn og þar á að standa. Það er finna öllum texta sinn stað. Litasamsetning skiptir einnig miklu máli, því ákveðnir leturlitir falla illa að ákveðnum grunnlitum. Allt verður að passa sama eigi heildrænt samspil grunnlitar, myndar og leturs að nást og harmonera við það myndefni sem prýða á umslagið eigi á annað borð að nota mynd. Á plötum Bubba hefur þetta oft tekist vel og albúmið náð að lýsa innihaldinu vel, misvel þó. Jafnvel komið fyrir að umslagið gengur ekki. En við skulum velja nokkrar plötur nánast af handahófi, og þó því allar hafa þær sem hér eru taldar stærri jákvæða þætti en til að jafnræðis sé gætt eru mínusarnir teknir með. Enda ekkert hafið yfir gagnrýni sé hún sett upp með það að markmiði að menn vandi sig meira í framtíðinni.

 

Við horfum á heildina. Það er alla þá fleti þar sem mynd eða texta er að finna. Hvað er þar og hvað vantar. Við styðjumst ávalt við fyrstu útgáfu platnanna þó við nefnum hinar einnig aðeins í þessu samhengi. Við sleppum þó plötuhringjum því þeir eru og verða ávalt of lítill hluti verksins og skipta aldrei verulegum sköpum í heildarmyndinni. Þó á því séu vissulega til undantekningar, sér í lagi með tilkomu CD plötunnar. En hér eru plúsar og mínusar nokkurra platna Bubba séð með augum þess sem þetta ritar.

Bubbi – Ísbjarnarblús (1980)

Image
Hönnun nær til framhliðar og bakhliðar
Plúsinn: Það er heildræn hönnun í þessu umslagi sem Karl Júlíusson á heiðurinn að. En hugmyndin er sótt til fiskiöskjunnar, pakkninga fyrir frystar fiskafurðir okkar, sem seldar hafa verið á erlenda markaði um langan tíma. Gengið er með hugmyndina alla leið. Hvort heldur er liti, stafagerð og framsetningu, og hún nær einnig til bakhliðar umslagsins.
Myndin af Bubba er vel heppnuð og nýtur sín vel á stóru LP umslaginu þar sem hann stendur ungur sperrtur reiður maður, við gráan ópússaðan múrvegginn og lýsir umslagið því nokkuð  vel ópússaða orðfæri sem textar plötunnar hafa að geyma. Á umslaginu er að finna allar helstu grunnupplýsingar sem yfirleitt voru látnar fylgja á þessum árum og frumútgáfunni var textablaðið til staðar.
Mínusinn: Fiskafurðirnar sem eru að finna framan á umslaginu og eru látnar ganga yfir myndina af Bubba er óvitlaus hugmynd, úrvinnslan er samt hálf misheppnuð, Þess ber þó að gæta að á þessum tíma voru ekki komnar til sögunnar tölvur og forrit eins og Fotoshop eða Freehand. Þá skal tekið fram fyrir þá sem ekki þekkja til að  frekar erfitt er að mynda matvæli svo vel sé, Er það fyrst og fremst litasamspil sem gerði þetta erfitt, þó linsur dagsins í dag séu mun fullkomnari. Textablaðinu var sleppt við endurútgáfu LP plötunnar og var það stór mínus því líklega var mikið stærra upplag plötunnar selt án þess en með. En kom þó sem betur fer aftur inn með CD útgáfunni. Þar er sá galli að sumar ef ekki flestar útgáfurnar er skorið ofan af B í nafni Bubba eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
 

Utangarðsmenn – Geislavirkir (1980)

Image
Geislavirkir eitt flottasta umslag rokksögunnar
Plúsinn: Frábært samræmi milli umslags og innihalds. Stafagerðin það er titill plötunnar setur skemmtilega hreyfingu í myndina og í raun er þetta plötuumslag eitt af best heppnuðu umslögum íslenskrar rokksögu. og ættu margir að kannast við hönnuðinn Ernst J. Backman. Myndin lýsir innihaldi textana vel og þeim krafti sem lögin bera. Hönnunin nær til bakhliðarinnar einnig en oft er sú hlið gleymd í hönnun platna og ætluð fyrir upplýsingar en mætti oftar hanna bakhliðina með þær í huga.
Mínusinn: Á umslagi plötunnar eru engar upplýsingar að finna nema á meðfylgjandi textablaði. Það í sjálu sér er ekki mínusinn heldur hitt að þessu textablaði var sleppt við þó nokkrar endurútgáfu plötunnar. Líkt og á Ísbjarnarblús var það sett inn þegar platan kom út á CD. Reyndar verður sú hugmynd útgefenda að nefna lagið Sigurður var sjómaður eftir frumlaginu Laus og liðugur einnig að flokkast sem talsvert stór mínus. Það er ekkert að því að skilja á milli þessa lags og frumlagsins sem hefur allt annan texta með sitt hvoru lagaheitinu.
 

Bubbi – Plágan (1981)

Image
Engin plága hvað umslagið varðar 3d-ART
Plúsinn: Tæknilega vel heppnað umslag. Það eina hingað til sem flokka má undir 3d-art á ferli Bubba. Það er mikið að gerast í þessari mynd framan á plötunni og það er líka mikið að gerast á þessari plötu. Þau hæfa því vel hvert öðru. Lítið vitum við um höfundinn Miles Parnell. Í fyrstu má ætla að hönnunin nái aðeins til framhliðarinnar en með því að setja einlitan ramma sem vistar heiti plötunnar og flytjandans má allt eins segja að hönnunin nái einnig til bakhliðarinnar sem er í sama lit. Til gamans má geta að þetta er einnig eina platan þar sem Bubbi notar eftirnafn sitt framan á umslagi plötunnar það er “Morthens” Textablaðið fær einnig plús fyrir haldgóðar upplýsingar þar sem hljóðfæraskipan hvers lags er listað og hverjir spila.
Mínusinn: Er kannski ekki stór en á textablaði LP plötunnar er textunum ekki raðað upp eftir þeirri röð sem lögin eru á plötunni. Fyrsti textinn á textablaðinu er til að mynda Plágan en platan hefst á laginu Segulstöðvarblús eins og allir vita. Þetta lagfærðist þó þegar CD útgáfa plötunnar kom.
 

Bubbi – Fingraför (1983)

Image
Eitt af mörgum velheppnuðum umslögum Bubba
Plúsinn: Fín hugmynd, sem hæfir heiti plötunnar vel en kemur kannski efninu ekkert svo mikið við fyrir hlustandann 1983. En árin liðu og einn daginn var þetta allt smollið saman, textarnir, líferni Bubba á þessum árum og myndin framan á plötunni varð skýr. Menn voru kannski almennt ekki að reyna að lesa nekt Bubba gagnvart fíkniefnum á þeim tíma sem platan kom út. Í ljósi sögunnar er þetta því eitt þeirra umslaga Bubba sem hafa vaxið með árunum. Hvaðan sem hugmyndin kom og hver sem meiningin var, þó hún gefi tilvísun í lagið Lög og reglu þá er hugmyndin frábær til lengri tíma litið. Svona getur flott hönnun vaxið með tímanum. 
Þá fær sú hugmynd að fylgja textum úr hlaði með smá umsögn Bubba stóran plús, þó Bubbi sé þar ekkert endilega að segja frá tilurð laga í smáatriðum.
Mínusinn: Fær hönnuðurinn Sveinbjörn fyrir það eitt að sleppa eftirnafni sínu á bakhliðinni en fyrir hönnun umslags eru þeir skráðir Sveinbjörn og Bubbi. Hvaða Sveinbjörn?
 

Bubbi – Kona (1985)

Image
Hluti bakhliða CD og LP platnana
Plúsinn: Líklega hefur verið meira fjallað um þetta umslag en nokkurt annað umslag Bubba. Hönnuðurinn Inga Sólveig, sem átti einnig hlut að máli við útlit plötunnar Ný spor, er  fyrirsætan á myndinni. Sé myndin skoðuð er hún í góðu samræmi við innihaldið. Dauðar rósir, þurrkaður blómvöndurinn lýsir andláti ástarinnar vel samleiðinni er lokið og manneskjan verður að horfast í augu við sjálfs sig og staðreyndirnar. Hönnunin er kláruð alla leið og nær yfir í textablað sem er einnig vel unnið. þar er hljóðfæraskipan í hverju lagi.
Mínusinn: Ekki veit ég hvort það sé rétt hjá mér en uppsetning og frágang á Jens Guð Sem þéttskrifar bakhlið LP plötunnar með upptalningu laga, Hljóðfæraleikara og upptökuupplýsingum, þakkarkveðjum og tileinkun plötunnar. Sumt af þessu var að finna á textablaðinu og hefði mátt létta bakhliðina. Þó þetta sleppi allt til varð að gera breytingar á þessari hlið við CD útgáfuna enda textamálið handskrifað og hefði líklega verið ólæsilegt á svo litlum fleti sem CD platan er.
Þá er hljóðfæraskipan hallærislega sett fram (á LP plötunni) þar sem menn eru skráðir fyrir ástætti og snerli, afsakið orðbragðið en hvar eru fjandans trommurnar? Reyndar er þessu bjargað fyrir horn á textablaðinu sem fær plús því þar má finna upplýsingar um hver leikur í hverju lagi fyrir sig.
 

Bubbi - Frelsi til sölu (1986)

Image
Frumhönnunin eftir Jens Guð fyrir ofan, en fór ekki inn á LPplötuna
Plúsinn: Fær ljósmyndarinn Bjarni Friðriksson. Flott mynd. En eins og margir vita var Bjarni hljóðmaður Bubba til margra ára. Hönnun umslagsins og heildarútlit er hinsvegar skrifað á Jens Guð. Ekki veit ég hve miklu hann fékk ráðið á þessum tíma því til að mynda var ákveðnum parti af hönnun hans sleppt á frumútgáfu plötunnar, en bætt inn við útgáfu hennar á CD og féll svo niður.
Mínusinn: Frelsi til sölu ekki vel hannað umslag á heildina litið og eru það nokkur léttvæg smáatrið sem valda því, þessi atriði safnast saman og skemma heildina. Því þessi smáatriði ná að pirra hönnuðinn í manni. Byrjum á myndinn sjálfri sem er höfð svo langt til vinstri að klippt er af fingrum Bubba þeim megin á umslaginu. Þá er það letrið: Tvær línur, sú efri með nafni Bubba í hvítum grunni sú neðri svartir stafir meðheiti plötunnar. Báðar línurnar eru hallandi og á milli þeirra ganga tvær línur frá sitthvorum enda umslagsins og fram yfir letur.  Þarna vantar svolítið í vönduðu vinnubrögðin Þessi þrir atburiðir passa hvergi saman í upphafi eða enda sínum. Þeir slútta ekki hver við annan. Hvorki í halla né í beinni línu hver niður af öðrum. Það munar að vísu ekki miklu, og kannski almenningur taki aldrei eftir þessu en þó eru til næm augu sem greina þetta vel. Til að skýra þetta fyrir einhverjum þá má segja að neðri textalínan sem er heiti plötunnar slútta ekki við efri línuna sem er nafn flytjandans og hvorug textalínan passar við línuna sem dregin er frá hægri hlið inn á þá vinsti. 
Hvert er markmiðið með bakhlið plötunnar, hnettir og stjörnur og geimflaugar? Engin sprengja þar! Með plötunni fylgdi einblöðungur. þar sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og Fantasíu um hvalinn eftir Kjarval er klínt yfir andlitsmynd af Bubba sem líklega var tekin á tónleikum á afmæli Reykjavíkurborgar fyrr á árinu. Bæði mannréttindayfirlýsingin og fantasían eru fínar hugmyndir og hefðu bara mátt standa án þess að vera gerðar hálfgegnsæjar og án þess að hafa Bubba á bakvið sig og gera þannig textamálið illlæsanlegt.  Hinu megin á blaðinu er sömu sögu að segja. Það er þar er hlutum troðið yfir andlit Bubba þó án þess að gera þá gegnsæja og enn er óþarfi að hafa þessa mynd af Bubba á bakvið. Þar eru þó að finna einu gagnlegu upplýsingarnar það er það er hverjir leika í hvaða lögum. Stóran mínus fær þessi plata fyrir að egnir textar fylgdu henni á sínum tíma. Á þessum árum var Bubbi textahöfundur sem sagðist hafa mikið að segja og átti því að leggja metnað í að leyfa okkur að lesa það einnig. Ég vona þó að Jens Guð. fyrirgefi mér þessar athugasemdir enda drengur góður. Og enn og aftur skulum við vera minnug þess að engar tölvur og Fotoshop voru komnar í hendur Jens Guð á þessum tíma.
 

Bubbi - Hver er næstur

Image
Þarna mætast útlit og innihald vel
Plúsinn: Flott mynd, eftir Sigurgeir í Sviðsmyndum sem nýtur sín vel á LP umslaginu enda hefur platan aldrei komið út á CD. Myndin er skörp, tekin nánst onígötunni svo að maður greinir harðan steinin en samt virkar hann eitthvað svo mjúklega á mann. Svo hlustar maður á titillag plötunnar og atburðurinn verður ljóslifandi fyrir manni og skyndilega er myndin á plötualbúminu komin upp í hugan eins og til að undirstrika máttinn. Horfið á albúmið og hlustið tvisvar á lagið eftir það sjáið þið albúmið ávalt fyrir ykkur í hvert sinn sem þið heitið lagið Hver er næstur. 
Það er óhætt að segja að albúmið magnar áhrif lagsins og sá maður á við alvarlegan tilfingardoða að stríða sem ekki verður snortinn af þessu tvennu saman það er texta lagsins og umslaginu. Gífurlega sterk mynd við þennan texta og samræmist vel titillagi plötunnar. Það þarf ekki alltaf að vera flókið að búa til flott umslag hafi maður aðgang að góðum ljósmyndara eins og þarna er. Blómin í götunni undirstrika að sorglegur atburðurinn gleymist ekki. Því einhver hefur haft fyrir því að ganga götuna þar sem hin sorglegi atburður átti sér stað og lagt blóm þar til minningar um atburin. 
Mínusinn: Er að ekki eru textablað og upplýsingarskortur verður áþreifanlegur. Hvar var platan tekin upp og hvenær? Er Bubbi ekki meðlimur Blómsins? Hann er ekki nefndur í lista þeirra sem taldir eru upp sem meðlimir Bubba og blómsins. Myndin á bakhliðinni er ofgerð þar sem rauður leikfangabíll friðarmerki og gerviblóm í leðurgrunni leika stór hlutverk. Skilaboðin voru á A-hliðinni og hefði mátt gera hinum tveim lögum plötunnar tilvísun með bakhliðinni.
 

Bubbi – Von

Image
Flott framhlið, óskyljanleg bakhlið
Plúsinn: Málverk eftir Tolla. Flott mynd. Mikið líf og allt að gerast, Lýsir tónlist plötunnar val og þessu gula sól sem lýsir allt. Hefði platan komið út á vínyl hefði verið fín lausn að setja einlitan ramma um myndina fyrir texta þ.e.a.s. heiti plötunnar og flytjanda, líkt og gert var á Plágunni. En þarna var engin LP plata heldur lítið CD umslag. Til að hámarka stærð myndarinnar er letrinu sleppt og myndin látin njóta sín. Það sleppur til fyrst og fremst vegna þess að platan fékk mikla umfjöllun og flytjandinn var alþekktur. Það er ekki sjálfgefið að þetta gangi upp en gerir það í þessu tilfelli. En hvað myndina varar var síðast vitað að þetta málverk hékk upp í Stúdíó Sýrlandi. Vonandi hefur því verið fundinn staður því það á heima á rokksafni íslenskrar tónlistarsögu.
Mínusinn: Bakhliðin er aftur á móti hálfmisheppnað og eins og þar hafi bara verið gert eitthvað til að gera eitthvað. Sítróna? óskiljanlegt það er ekkert súrt við þessa plötu. Þar hefi mátt vanda betur til verka. Sama má segja um kjöl plötunnar sem er þrílitur.

Hér höfum við aðeins tekið fyrir nokkrar platna Bubba frá fyrri hluta ferilsins. Cera má að einhverjir séu á annar skoðun varðandi ýsma þætti sem nefndir eru. Það er bara hið besta mál.
Það getur verið nokkuð gaman að sökkva sér í það andartak að hugsa “Hvað er það sem er að hrífa mig” eða öfugt. Það er líka stundum eitthvað sem pirrar augað án þess að við hugsum út í það.  En vonandi hafa einhverjir haft gagn og gaman af þessum mola, sem er fyrst og fremst unnin til að sýna fram á að hönnun plötuumslags er ekki bara eitthvað, Heldur nákvæmnisverk þar sem huga þarf að öllum þáttum eigi útkoman að verða mönnum til ánægju.
 

PS: Það skal tekið fram að hér er aðeins um persónulegt mat að ræða og viðkomandi er alls ómenntaður á þessu sviði. En það er þó innan áhugasviðsins.

 
Næsti >

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?