1985 |
![]() |
![]() |
![]() |
2. janúar 1985 hóf Bubbi upptökur fyrir væntanlega sólóplötu sem síðar fékk heitið Kona. Með honum í hljóðverinu var Tryggvi Herbertsson í hlutverki upptökustjóra og þá var Þorleifur Guðjónsson tíður gestur í hljóðverinu með bassann.
18. janúar 1985 Frétt í Morgunblaðinu segir frá að Íslenska Kvikmyndasamsteypan sem var í eigu Friðriks Þórs Friðsikssonar sé að vinna heimildarmynd um Bubba Morthens þar sem ferill Bubba verði rakinn frá því hann hóf feril sinn 1980 og til þessa dags. Ekkert varð þó af þessari mynd en umræðan um hana eða ámóta mynd á vegum Friðriks kom þó öðru hverju upp á yfirborðið næstu árin.
28. mars 1985 Blúskvöld á efri hæðinni í Hollywood þar sem Klúskompaníið lék. Sú sveit var skipuð eftirtöldum: Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson, Sigurður Karlsson og Jón Kjell. Sérstakur gestur þetta kvöld var auglýstur Bubbi Morthens. Það má því ljóst vera að Bubbi brá sér í Holly þetta kvöld.
apríl 1985 Bubbi undirritaði samning við Mislur. Sem var sjálfstætt sænskt útgáfufyrirtæki.
1. maí 1985 Hátíðarhöld með hefðbundnu sniði víðast hvar og í þetta sinn var Bubbi staddur á Húsavík þar sem hann kom fram og tók nokkur lög.
20. júní 1985 Önnur tónleikaferð Bubba um landið á árinu hefst. Bubbi spilaði stíft í þessari ferð sem stóð fram yfir miðjan júlímánuð.
10. ágúst 1985 Var gefið út að plata Bubba Morthens Kona hefði þegar selst í yfir 3000 eintökum og væri langsöluhæsta íslenska platan þetta sumar.
17. október 1985 Daganna 17.-20. október efndi Bubbi til tónleika á Norðurlandi.
12. desember 1985 Bubbi með tónleika í Safarí.
15. desember 1985 var gefin út tólftommu platan Hjálpum Þeim. Platan skartaði útvali bestu og vinsælustu söngvara þjóðarinnar var átak til hjálpar bástöddum í Afríku. Um tíma leit út fyrir að Bubbi yrði ekki með á plötunni þar sem hann var upptekinn í Svíþjóð við sína næstu plötu. Þá var brugðið á það ráð að senda Gunnar Þórðarson utan með upptökuband og söng Bubbi inn á lagið ytra.
23. desember 1985 Hótel Borg auglýsti tónleika Bubba Morthens ásamt í fyrsta skipti Sveina Sextettinn en hana skipa. Bubbi Morthens: Söngur, gítar, Sigurgeir Sigmundsson: Gítar, Jens Hansson: Saxófónn, Guðmundur Ingólfsson: Píanó, orgel, Björgúlfur Eigilsson: Bassi. Síðan þá hafa þessir tónleikar verið skylgreindir sem fyrstu Þorláksmessutónleikar Bubba.
|
< Fyrri | Nćsti > |
---|
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?