| 1995 |
|
|
|
|
2. febrúar 1995 gaf Skífan út safnplötuna Heyrðu aftur '94. Lítt merkileg plata með 17 smellum ársins 1994, þrátt fyrir að þar sé að finna lagið Sumar konur með Bubba.
24. febrúar 1995 Bubbi á tónleikaferð um landið t.d. var hann í Eyjum 23. og 24. febrúar og kvöldið eftir eða 25. febrúar var Bubbi með tónleika á Selfossi. Ætlunin var að ferðast um landið með tónleika milli þess sem GCD ynni næstu plötu sína.
9. mars 1995 Bubbi heldur enn áfram tónleikaferð um landið og er t.d. á Mælifelli á Sauðárkróki þetta kvöld, 10, mars í Sæluhúsinu Dalvík og 11. mars í Siskó-húsinum á Ólafsvík.
31. mars 1995 Bogomil Font kom sérstaklega til landsins og sló upp tónleikum í Tunglinu og fékk Bubba Morthens og Egill Ólafsson í lið með sér og um undirleik sá Talmasveitinni.
7. apríl 1995 Miðnæturskemmtun í Súlnasal Hótel Sögu þar sem m.a. koma fram þeir félagar Egill Ólafsson, Bubbi Morthens og Bogomil Font. Eftir tónleikana sáu svo Agi Slæ og Tamlasveitin um að spila fyrir dansi. Kvöldið eftir þ.e. 8. apríl koma þeir fram í kostningarsjónvarpi Ríkissjónvarpsins.
20. apríl 1995 Bubbi með tónleika á Sauðárkróki og 22. apríl á Tveim vinum í Reykjavík. Svo er áfram ferðast um landið út mánuðinn.
26. maí 1995 GCD hefja sumarvertíðna með tónleikum á Akranesi, kvöldið eftir var sveitin í Njálsbúð.
Að því tilefni efndi sveitin til útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum þetta kvöld. Kvöldið eftir var sveitin á Ýdölum, Hótel Húsavík á Laugardagskvöldið og Miðnæturtónleikum í Sjallanum, Akureyri.
25. Júlí 1995 G.C.D. eru meðal þeirra sem koma fram á Hard Rock Café sem fagnaði átta ára afmæli sínu þetta kvöld.
1. ágúst 1995 Svalasmellir koma út Lítið um það að segja nema að GCD eiga þar lag.
5. ágúst 1995 GCD meðal þeirra sem koma fram á sérstakri verslunarmannahátíð á Hótel Íslandi - undir kjörorðinu Útihátíð á mölinni. Þar komu fram Spaugstofan sem fagnaði 10. ára afmæli sín, Brimkló og margir fl.
26. september 1995 Bubbi heldur í eina tónleikaferðin enn um landið og byrjar í La-prilla í Sangerði, kvöldið eftir á Knúdsen, Stykkishólmi 29. á Hótel Kirkjubæjarklaustri. Síðan er bara eins og venjulega haldið áfram kvöld eftir kvöld. En Bubbi hafði þá nýlokið upptökum á næstu plötu sinni.
1. október 1995 Ásgeir Óskarsson sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu - Veröldin smá og stór. Þar sem Bubbi ljáir honum röddun í laginu Langt er liðið.
10. október 1995 Platan í Skugga Morthens kemur út. Platan inniheldur lög sem Haukur Morthens hafði gert vinsæl á sínum tíma. Bubbi sleppti samt að taka lagið til eru fræ, taldi það lag Hauki einum ætlað.
13. nóvember 1995 Demósession í Stúdíó Sýrlandi. Meðal laga sem Bubbi tekur einn með gítarinn má nefna Hann elskar mig ekki, Alla daga, Jesús Pétur..., Jarðaför Bjössa, Þú og ég og Sá sem gaf þér ljósið. 14. nóvember 1995 sendi Orri Harðar frá sér plötuna Stóri draumurinn, Þetta var önnur sólóplata Orra og þar kemur Bubbi við sögu í einu laganna.
7. desember 1995 Ásgeir Óskarsson efnir til útgáfutónleika í Loftkastalanum og er Bubbi meðal þeirra sem koma fram en fjölmargir söngvarar og tónlistarmenn komu að gerð sólóplötu hans Veröld smá og stór. 13. desember 1995 mátti sjá í Morgunblaðinu frétt þess efnis að Bubbi, Orri Harðar og Kristín Eysteinsdóttir hafi sameinast um að halda sameiginlega tvenna tónleika. Þá fyrri í Sjallanum á Akureyri 13. desember og síðari tónleikarnir yrðu svo í Loftkastalanum 14. desember. 23. desember 1995 Þorláksmessutónleikar á Hótel Borg. Of pakkað að margra mati. Bubbi er þó í fínu formi og opnar þessa tónleika á Dylanlaginu Ballad of Hollis Brown og í kjölfarið ný og gömul lög. Að venju í beinni útsendingu á Rás 2. |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?