| 2004 |
|
|
|
|
febrúar 2004 bárust fréttir þess efnis að Egoið kæmi saman á ný, ekki var í upphafi ljóst hvaða liðskipan yrði á sveitinni en líklegast var þar um Magga trommara og síðan var á huldu hver bassaleikarinn yrði. Síðar kom í ljós að um endurreisn sveitarinnar var að ræða ekki endurkomu þeirrar sveitar sem kvatt hafði með sinni þriðju og síðust plötu árið 1984. Menn biðu því spenntir eftir hver liðskipanin yrði og voru uppi ýmsar getgátur í þeim efnum. apríl 2004 Bubbi lauk upptökum nýrrar plötu sem koma átti út fyrir jólin 2004. 6. maí 2004 var mastera nýtt lag með Bubba og Bang Gang sem fékk heitið Fallegur dagur, í Stúdíó Írak en áformað var að þeir ynnu saman plötu árið 2005. 13. maí 2004 byrjar Egoið æfingar. Maí 2004 Seinnihluta mánaðarins hefst árleg tónleikaferð Bubba um landið, um líkt leyti fer nýtt lag með Bubba að óma í eyrum landsmanna sem þegar fékk viðurnefnið Fjölmiðlalagið, enda auðheyrt að þar var á ferð mótmælasöngur við ákvörðun ríkisstjórnarinnar að setja lög á fjölmiðla, án nokkurar umræðu það að lútandi. Júní 2004 hófst skráning í aðra Idolkeppni og mátti heyra í umræðunni. Bubbi fer í myndatökur vegna þess ásamt öðrum dómurum, þeim Siggu Beinteins og Þorvaldi. Auk þess sem Papar senda frá sér stök lög af væntanlegri Tribute plötu sem inniheldur lög Bubba Morthens. 14. júní 2004 Fjölmiðlalagið svonefnda kemur út á smáskífu undir heitinu Frelsið í hættu, einu sinni enn. Lagið er eftir Country Joe & Fish og varð frægt er hann flutti það á Woodstock hátíðinni frægu og var mótmælasöngur gegn Víetnamstríðinu. Lagið heldur gildi sínu því enn er það nýtt í baráttu góðra málefna. 28. júní 2004 kom út Svona er sumarið 2004 sem inniheldur lagið Fallegur dagur sem Bubbi vann í samstarfi við Barða í Bang Gang. Lagið fékk góðar viðtökur sem sást m.a. vel á viðbrögðum fólks við laginu á vefsvæðinu Tónlist.is Þá kemur fram í viðtölum að Bubbi sé með bók í smíðum sem væntanleg sé á árinu. 29. júlí 2004 mættu Maggi og Bubbi í viðtal á Stöð 2 í þættinum Ísland í dag og Hljómsveitin Ego lék í beinni lagið Fjöllin hafa vakað. Þetta var fyrsta opinberun nýju uppstillingu sveitarinnar. En sveitin var skipuð: Bubbi Morthens söngur, Jakob Magnússon bassi, Magnús Stefánsson trommur, Hrafn Thoroddsen orgel og Einar Þór Jóhannsson gítar.Ágúst 2004 Verslunarmannahelgin og Ego mætti á Þjóðhátíð sem eitt aðalnúmer hátíðarinnar það árið en Árna Johnsen stjórnaði nú brekkusöng á ný eftir tímabundna fjarveru. 21. ágúst 2004 er efnt til Menningarnætur í Reykjavík þar sem haldnir eru stórtónleikar á Hafnarbakkanum. Meðal þeirra sem þar koma fram er Ego. Þar sem endalaust mannhaf syngur með Bubba og félögum. Uppákomunni er útvarpað er í beinni á Rás 2. 1. október 2004 fyrsti þáttur Idolsins sýndur á Stöð 2. Sama dag og Kalli Bjarni sem sigrað hafði fyrstu Idolkeppnina gaf út plötu sína. Sama kvöld héldu Ego tónleika á Nasa sem og kvöldið eftir. Húsfylli var og rúmlega það. (mynd: Egóið í kjallara Nasa 1. okt, Bubbi.is/Bárður Örn Bárðarson).8. október 2004 Blindsker - Saga Bubba Morthens frumsýnd í Smárabíói. Myndinni vel tekið og talað um tímamót i sögu heimildamynda hér á landi. Sama kvöld var sýndur á Skjá einum þáttur um tilurð myndarinnar þar sem sýnd voru brot úr myndinni og rætt við aðstandendur hennar. Október 2004 kom sólóplatan Tvíburinn út. 21. október 2004 hafði verið áformað að Bubbi héldi tónleika sem sendir yrðu út í mynd á netinu af tónlist.is en þeir voru blásnir af um mánaðarmótin september - október. Bubbi vildi heldur leggja áherslu á eigin útgáfutónleika. 16 nóvember 2004 Blindsker - Saga Bubba Morthens hlýtur Edduverðlaunin í flokki Heimildamynd ársins. Enda hafði hún slegið öll aðsóknarmet og var orðin langmest sótta heimildamynd íslenskarar kvikmyndarsögu. 23. desember 2004 Árlegir Þorláksmessutónleikar Bubba fara fram á Nasa við Austurvöll og eru í beinni útsendingu á Bylgjunni. |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?