Arfur |
||
Lög
FlytjendurBubbi Morthens: Söngur, gítar, munnharpa ; Gunnlaugur Briem: Ásláttur ; Gunnlaugur Guðmundsson: Kontrabassi. Upptökur fóru fram dagana 6-8 ágúst 1998 í Stúdíó Sýrlandi. Útsetningar: Bubbi Morthens ; Upptaka og hljóðblöndun: Óskar Páll Sveinsson Nóta úr umslagi plötunnarÍ Íslenskum gátum, skemmtunum, vikivökum og þulum sem Ólafur Davíðsson gaf út í fjórum bindum á árunum 1887 til 1903 er að finna fjársjóð fyrir þá sem hafa áhuga á Íslenskum alþýðu-skáldskap. Skáld hafa lengi sótt í þennan sjóð, til dæmis ljóðskáldin sem voru ung fyrir hundrað árum, Hulda, Jóhann Sigurjónsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson. Ég hef fetað í fótspor þeirra og tekið traustataki hendingar og viðlög úr þessum gömlu kvæðum, breytt þeim og sniðið að mínum þörfum. Áhrif frá þeim má víða sjá í textum á þessari plötu og við eitt kvæðið hef ég gert lag og notað það í heilu lagi. Það er kvæðið um tröllið á glugganum sem ég nefni ,,Gluggagægi" Þessi kvæði og þulur eru löngu orðin almenningseign og ég kvet alla sem lesa þessar línur til að kynna sér þennan menningar arf og skila honum áfram svo hann gleymist ekki Bubbi Morthens Vinsældalistar
#10. sæti MBL - Tónlistinn (6.11.1998) 2. vikur á topp 10 ; 7. vikur á topp 20* Útgáfusaga
CD Skífan (10. október 1998 Dig pack, takmarkað upplag) |
||
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?